|
Nemendur íþróttavals standa í ströngu þessa dagana. Nú eru þau á fullu að skipuleggja Vogskóla útgáfu af "Wipeout" sem eru afar vinsælir sjónvarpsþættir sem m.a. hafa verið sýndir á Stöð2 í vetur.
Nemendum hefur þegar verið skipt í tvo hópa, rauða og bláa. Verkefni hópanna er á þá vegu að þau búa til,setja upp og sjá alfarið um hönnun tveggja mismunandi þrautabrauta.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skólahljómsveit Austurbæjar |
|
Hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hafa losnað nokkur pláss í slagverksnám.
Nemendur í 3. - 7. bekk stendur til boða að sækja um. Öll slagverkskennsla fer fram í Laugarnesskóla, kennari er Ólafur Hólm.
Vinsamlegast hafið samband við Vilborgu í síma: 664-8404 eða í tölvupósti:
Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.
|
|
Opin hús, innritun og inntökuskilyrði í framhaldsskólum |
|
Hér eru upplýsingar um opin hús, innritun og inntökuskilyrði í framhaldsskólana. |
|
Fimmtudaginn 25. febrúar keppti Vogaskóli í Skólahreysti 2010. Það voru þau Arnór Daði Benjamínsson (10. Á.P), Dagmar Björk Jónsdóttir (10. B.E.), Gísli Stefán Hauksson (10. B.E.) og Sunna Rut Guðnadóttir (9. Þ.S) sem kepptu fyrir skólann. Þrátt fyrir stuttan undirbúning stóðu krakkarnir sig vel og voru flott í brautinni eins og sjá má á myndunum. |
|
Á miðvikudagskvöld var „Glowstick“ ball hér í Vogaskóla. Nemendur mættu flestir í hvítum fötum og voru vel skreyttir með glowstick. Reykvél, neonljós og gott stuð – eins og myndirnar sýna. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 40 |