Vogaskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Vogaskóli
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólana

stSunnudaginn 21. mars fór fram verðlaunaafhending í Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema sem var haldin í Menntaskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 9. mars. Eftirtaldir nemendur úr Vogaskóla voru meðal 10 efstu í sínum bekk: Auður Gunnarsdóttir úr 10. bekk og Þór Sverrisson úr 9. bekk.  Við óskum þessum nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur.

 
Sæbjörgin

sae3. bekkur fór að skoða skólaskipið Sæbjörgu. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og ýmislegt sem við fengum að skoða. T.d. fengu allir að fara um borð í gúmmíbjörgunarbát, smakka kex sem er geymt í björgunarbátum og máta hjálma. Hér má sjá myndir úr ferðinni.

 
Köngulær

kongGaman, gaman, köngulær í myndmennt með 4. bekk. Hér má sjá myndir af nemendum með flottu köngulærnar sínar.

 
"Stóra upplestrarkeppnin"

uppMánudaginn 8. mars kepptu 10 nemendur úr 7. bekk í  lokakeppninni í Vogaskóla.

Þetta voru Hulda María Albertsdóttir, Freyja Magnúsdóttir, Magdalena Guðrún Bryndísardóttir, Atli Páll Pétursson, Alexander Huang, Elías Henrik Haraldsson, Sara Sólveig Kristjánsdóttir, Guðrún Agla Gunnarsdóttir, Hrafn Ingi Jóhannsson og Pétur William Jack Hilmarsson.

Þessir krakkar höfðu áður verið valin sem bestu lesararnir í 7. bekk.

Lesa meira...
 
Sýningin ljóslitlífun

ljosNemendur í textílmennt og myndmennt í 8.bekk fóru á sýninguna Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu. Sýningunni er ætlað að kynna hóp ungra íslenskra listamanna sem á það sameiginlegt að hafa alist upp við sjónmenningu, mótaða af myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist, sem hefur haft mótandi áhrif á verk þeirra.

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 40

Matur í dag

10.09.2010

Pylsur og pylsubrauð, meðlæti

Sjá matseðil mánaðarins

Verði ykkur að góðu!


Nýtt efni á síðu

Heimili og Skóli
Menntamálaráðuneytið
Olweus gegn einelti
Reykjavíkurborg
Umboðsmaður barna