|
Fáránleikar, skinkur og hnakkar, árshátíð :-) |
|
Árshátíð unglingastigs var haldin fimmtudaginn 18. mars 2010. Til að skapa stemningu fyrir árshátíðina héldu nemendur „Fáránleika" á miðvikudeginum sem nemendaráð skólans skipulagði og var keppt í hinum furðulegustu greinum. Á sjálfan árshátíðardaginn mættu nemendur í skólann sem „Hnakkar og skinkur" og var þetta gert til gamans. Síðan mættu allir prúðbúnir um kvöldið á sjálfa árshátíðina. Þemað í ár var franskt og tóku fiðluleikari, látbragðsleikarar og aðrir skemmtikraftar á móti nemendum þegar þeir komu í hús.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Krakkarnir í 4. bekk breyttu aðeins um fatastíl í dag. Strákar klæddust stelpufötum og öfugt. Það var gaman að sjá hvernig strákarnir völdu skæra liti og glingur á meðan stelpurnar völdu frekar dökkan klæðnað og fylgihluti. Svo fengu sumir að prófa Carmen-rúllur eins og meðfylgjandi myndir sýna.
|
|
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólana |
|
Sunnudaginn 21. mars fór fram verðlaunaafhending í Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema sem var haldin í Menntaskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 9. mars. Eftirtaldir nemendur úr Vogaskóla voru meðal 10 efstu í sínum bekk: Auður Gunnarsdóttir úr 10. bekk og Þór Sverrisson úr 9. bekk. Við óskum þessum nemendum innilega til hamingju með frábæran árangur.
|
|
3. bekkur fór að skoða skólaskipið Sæbjörgu. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn og ýmislegt sem við fengum að skoða. T.d. fengu allir að fara um borð í gúmmíbjörgunarbát, smakka kex sem er geymt í björgunarbátum og máta hjálma. Hér má sjá myndir úr ferðinni.
|
|
Gaman, gaman, köngulær í myndmennt með 4. bekk. Hér má sjá myndir af nemendum með flottu köngulærnar sínar.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 8 af 40 |