Vogaskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Vogaskóli
Skrápa tröllskessa

skrÍ vikunni 12. – 16. apríl byrjuðum við að vinna söguramma um Skrápu tröllskessu í 1. bekk og eru nemendur mjög áhugasamir.

 
Þemadagar
temaÞað var mikið um að vera á þemadögum í Vogaskóla. Nemendur unnnu að alls kyns skemmtilegum verkefnum.
Þau léku leikrit, bjuggu til vinabönd, gerðu turna úr dagblöðum, fóru í hópleiki, vinaleika og
kókoskúlubakstur svo eitthvað sé nefnt. Ekki er annað að sjá á myndunum en að allir hafi skemmt sér vel. Hér má finna uppskriftina af kókoskúlunum.
 
Tónlist fyrir alla

tonlVið fengum skemmtilega heimsókn í Vogaskóla þegar Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson komu og fluttu tónlist, allt frá flugi „Óðu býflugunnar“ til Michael Jacksons. Áheyrendur voru virkjaðir til þátttöku með söng, klappi og hreyfingum og í lok tónleikanna fóru nemendur í Kongadans. Þetta var frábær skemmtun fyrir alla fullorðna og börn eins og sjá má á myndunum.

 
Fréttir úr Buskanum
Miðvikudaginn 3. febrúar fóru fram árlegir Kærleikar í Laugardal.  Kærleikarnir eru samstarfsverkefni þriggja skóla: Langholts-, Laugalækjar- og Vogaskóla og þriggja félagsmiðstöðva: Þróttheima, Laugó og Buskans.  Hópur krakka úr Laugardalnum starfaði saman og skipulagði Kærleikana í heild sinni. Krakkarnir sömdu sérstakt kærleikslag, skipulögðu tónleika í Þróttheimum þar sem hljómsveitirnar Agent Fresco og Sykur spiluðu fyrir áhorfendur.  Hátíðinni lauk svo með heljarinnar kærleiksballi í Laugaleikjarskóla sem um 350 unglingar mættu á.
Lesa meira...
 
Vinnuskóli Reykjavíkur
Nú eru skráningar í Vinnuskóla Reykjavíkur fyrir unglinga í grunnskólum
Reykjavíkur að fara af stað. (14. apríl)
Sú nýbreytni á sér stað í ár að skráningar fara fram í gegnum rafrænu
Reykjavík því viljum við benda á að það er í verkahring þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og þjónustuvers Reykjavíkurborgar að aðstoða þá sem þurfa við skráningu nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 40

Matur í dag

10.09.2010

Pylsur og pylsubrauð, meðlæti

Sjá matseðil mánaðarins

Verði ykkur að góðu!


Nýtt efni á síðu

Heimili og Skóli
Menntamálaráðuneytið
Olweus gegn einelti
Reykjavíkurborg
Umboðsmaður barna