|
Nemendur í 4. bekk tóku þátt í setningu barnamenningarhátíðar. Hér má sjá myndir frá því. |
|
|
Í Vogaskóla eru sniðugir og skapandi nemendur sem eru alveg sérstaklega klárir í að búa til fallega hluti. Snillingarnir í 5.bekk hafa hannað munstur og saumað út í litla krúttlega púða, stuðboltarnir í 6.bekk hafa hannað og smíðað lítil rafknúin leikföng, meistararnir í 7.bekk hafa prjónað litríka kleinuhringi sem eru bæði fallegir og ómótstæðilega girnilegir. Þau hafa líka hannað og smíðað frumlega og flotta lampa. Þessir fallegu hlutir eru nú til sýnis í versluninni Minervu á Laugavegi 40 og verða meðan á Barnamenningarhátíð stendur, eða til 25.apríl. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að kíkja á útstillinguna.
|
|
Í vikunni 12. – 16. apríl byrjuðum við að vinna söguramma um Skrápu tröllskessu í 1. bekk og eru nemendur mjög áhugasamir. |
Það var mikið um að vera á þemadögum í Vogaskóla. Nemendur unnnu að alls kyns skemmtilegum verkefnum. Þau léku leikrit, bjuggu til vinabönd, gerðu turna úr dagblöðum, fóru í hópleiki, vinaleika og kókoskúlubakstur svo eitthvað sé nefnt. Ekki er annað að sjá á myndunum en að allir hafi skemmt sér vel. Hér má finna uppskriftina af kókoskúlunum. |
|
Við fengum skemmtilega heimsókn í Vogaskóla þegar Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson komu og fluttu tónlist, allt frá flugi „Óðu býflugunnar“ til Michael Jacksons. Áheyrendur voru virkjaðir til þátttöku með söng, klappi og hreyfingum og í lok tónleikanna fóru nemendur í Kongadans. Þetta var frábær skemmtun fyrir alla fullorðna og börn eins og sjá má á myndunum. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 5 af 40 |