|
Það er búið að vera nóg að gera hjá 1. bekk undanfarið. Börnin fóru út að tína rusl á skólalóðinni í góða veðrinu. Þau voru alveg hissa á sóðaskapnum! Þau fundu ýmsar matarleifar og umbúðir. Og það allra versta var að þau fundu mjög mikið af sígaretturusli!
Einnig buðu börnin foreldrum og öðrum aðstandendum á leikrit um Skrápu tröllskessu. Sýningin tókst ákaflega vel og voru börnin til fyrirmyndar. Þau léku hlutverk sín mjög vel og einnig voru þau frábærir áhorfendur. Þau voru kurteis og tillitssöm. Takk fyrir skemmtilega sýningu.
|
|
|
Kvikmyndahátíð grunnskólanna, Taka 2010. Var haldin í Sambíóunum miðvikudaginn 19. maí. Hátíðin var óvenju glæsileg að þessu sinni og sérstaklega var mikil aukning í hflokki heimildamynda.
Þór Sverrisson í 9.Þ.S. gerði sér lítið fyrir og vann fyrstu verðlaun í flokki hreyfimynda, annað árið í röð, en í fyrra vann hann bæði fyrstu og önnur verðlaun í sama flokki. Til hamingju með þetta Þór.
Myndina má sjá hér: http://www.mbl.is/video_competition/view/220/
Þá er gaman að segja frá því að Vogaskóli, ásamt tveimur öðrum skólum í borginni, hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir öflugt starf í stuttmyndagerð. |
|
Helgina 30. apríl - 2. maí var farið með 10. bekk í útskriftarferð/vorferð. Farið var að Hofi í Öræfasveit. Skipulag og fararstjórn var alfarið í höndum foreldra.
Farið var í ratleik, siglingu á Breiðamerkurlóni og göngu að Svartafossi í Skaftafelli. Auk þess voru nemendur dugleg við að skemmta sér sjálf. Á leiðinni voru ummerki eldgossins könnuð - og sumir söfnuðu ösku í poka.
Þetta var í alla staði frábær ferð. Hér fylgja nokkrar myndir úr ferðinni.
|
|
Börnin unnu skemmtilegt póstverkefni í skólanum. Þau sömdu fallegan texta og skrifuðu hann á blað og sendu til foreldra sinna. Þetta verkefni samþætti lífsleikni, stærðfræði og íslensku. Börnin voru spennt og glöð þegar þau settu bréfin í póstkassann. Sjáið myndirnar. Einnig eru margar myndir af skemmtilegum verkefnum og atburðum vetrarins hjá 2.GNG. |
|
1.S.U. heldur áfram að vinna í sögurammanum um Skrápu tröllskessu og Jón sauðamann. Börnin standa sig vel og voru einstaklega flott í samvinnu þegar þau gerðu Jón og Skrápu. Börnin eru búin að gera bakrgrunn, sauði, Jón og Skrápu. Einnig eru þau búin að gera landakort af flóttaleið Jóns frá helli Skrápu. Flott hjá ykkur krakkar! Hér eru fleiri myndir.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 40 |