Vogaskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Vogaskóli
Sjóminjasafnið

sjo2bÍ samfélagsfræði í vetur hafa börnin verið að læra um hafið og sjávarútveg. Ferðin var farin í tengslum við það námsefni. Sjáið myndir af frábærum börnum í 2.GNG á frábæru safni.

 
Græna bylgjan
gr5bBirkir og Guðlaug í 5. bekk voru fulltrúar Vogaskóla í verkefninu Grænu bylgjunni (Greenwave) sem umhverfisráðuneytið, Skógræktarfélag Íslands og Yrkjusjóður, sem stofnaður var af Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta, koma að fyrir Íslands hönd. Græna bylgjan er alþjóðlegt verkefni um líffræðilegan fjölbreytileika  (sjá: http://greenwave.cbd.int/en/home). Nemendur um víða veröld eru hvattir til að leggja sitt að mörkum i umhverfismálum með því að gróðursetja eitt tré fyrir hvern skóla.
 
1. bekkur

ru1bÞað er búið að vera nóg að gera hjá 1. bekk undanfarið. Börnin fóru út að tína rusl á skólalóðinni í góða veðrinu. Þau voru alveg hissa á sóðaskapnum! Þau fundu ýmsar matarleifar og umbúðir. Og það allra versta var að þau fundu mjög mikið af sígaretturusli!

Einnig buðu börnin foreldrum og öðrum aðstandendum á leikrit um Skrápu tröllskessu. Sýningin tókst ákaflega vel og voru börnin til fyrirmyndar. Þau léku hlutverk sín mjög vel og einnig voru þau frábærir áhorfendur. Þau voru kurteis og tillitssöm. Takk fyrir skemmtilega sýningu.

 
Taka 2010

Kvikmyndahátíð grunnskólanna, Taka 2010. Var haldin í Sambíóunum miðvikudaginn 19. maí. Hátíðin var óvenju glæsileg að þessu sinni og sérstaklega var mikil aukning í hflokki heimildamynda.

Þór Sverrisson í 9.Þ.S. gerði sér lítið fyrir og vann fyrstu verðlaun í flokki hreyfimynda, annað árið í röð, en í fyrra vann hann bæði fyrstu og önnur verðlaun í sama flokki. Til hamingju með þetta Þór.

Myndina má sjá hér: http://www.mbl.is/video_competition/view/220/

Þá er gaman að segja frá því að Vogaskóli, ásamt tveimur öðrum skólum í borginni, hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir öflugt starf í stuttmyndagerð.

 
Vorferð 10. bekkinga

hofHelgina 30. apríl - 2. maí var farið með 10. bekk í útskriftarferð/vorferð. Farið var að Hofi í Öræfasveit. Skipulag og fararstjórn var alfarið í höndum foreldra.

Farið var í ratleik, siglingu á Breiðamerkurlóni og göngu að Svartafossi í Skaftafelli. Auk þess voru nemendur dugleg við að skemmta sér sjálf. Á leiðinni voru ummerki eldgossins könnuð - og sumir söfnuðu ösku í poka.

Þetta var í alla staði frábær ferð. Hér fylgja nokkrar myndir úr ferðinni.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 40

Matur í dag

07.09.2010

Svínasnitzel með sykurbrúnuðum kartöflum, brún sósa og rauðkál og grænar

Sjá matseðil mánaðarins

Verði ykkur að góðu!


Nýtt efni á síðu

Heimili og Skóli
Menntamálaráðuneytið
Olweus gegn einelti
Reykjavíkurborg
Umboðsmaður barna